,,Við áttum í fullu tré við þá í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir með lukkumarki. Það drap okkur svolítið," sagði Atli Jóhannsson miðjumaður Stjörnunnar eftir 3-0 tapið gegn Inter í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 3 Inter
Stjörnumenn gerðu sig líklega til að skora í síðari hálfleiknum. Atli átti sjálfur eina marktilraun í fyrri hálfleik en langskot hans fór þá hátt yfir.
,,Það hefði verið draumur að skora. Ég setti hann hátt upp í ljósin. Við fengum tvö ágætis færi og sénsa eftir klafs en svona er þetta," sagði Atli sem þakkaði fyrir stuðninginn líkt og aðrir leikmenn Stjörnunnar.
,,Það er bara í brekkunni sem maður hefur heyrt fleiri saman að syngja. Takk kærlega allir sem komu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir