Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 20. ágúst 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Breytti nafni sínu í Manchester United
Mynd: Sun
Búlgarinn Zdrackov Levidzhov er grjótharður stuðningsmaður Manchester United.

Zdrackov hefur breytt nafni sínu í Manchester United en búlgörsk yfirvöld vilja ekki samþykkja að hann hafi United á persónuskilríkjum sínum.

Til að mótmæla því hefur kappinn ákveðið að tattúa merki Manchester United á ennið á sér.

Þessi fimmtugi smiður hefur haldið með Manchester United síðan hann sá liðið vinna FC Bayern 2-1 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1999.

Manchester talar enga ensku en hann hefur þó einu sinni farið á Old Trafford, árið 2009 þegar liðið sigraði Bolton.

Uppáhalds leikmaður Manchester er David Beckham fyrrum leikmaður félagsins.

Hér til hliðar má sjá umfjöllun The Sun um þennan ótrulega mann, Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner