Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 20. ágúst 2014 09:59
Elvar Geir Magnússon
Snodgrass frá næstu sex mánuði
Áfall fyrir Snodgrass.
Áfall fyrir Snodgrass.
Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Robert Snodgrass varð fyrir alvarlegum meiðslum á hné þegar Hull City vann QPR.

Hull keypti Snodgrass frá Norwich á 6 milljónir punda í júní og þarf að fara í aðgerð.

Steve Bruce, stjóri Hull, sagði við fjölmiðla að Snodgrass yrði frá í sex mánuði og það væri mikið áfall fyrir liðið.

„Við höfum eytt háum fjárhæðum í að styrkja þetta miðsvæði og nú höfum við misst Snodgrass stóran hluta tímabilsins. Þetta er sorglegt fyrir okkur og fyrir hann sjálfan," sagði Bruce.



Athugasemdir
banner
banner
banner