,,Mér fannst við standa okkur ágætlega. Við vissum að við þyrftum að ligga heilmikið í vörn og mér fannst við gera það mjög vel í fyrri hálfleik," sagði Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stjörnunnar eftir 3-0 tapið gegn Inter í kvöld.
,,Við erum að spila á móti Inter Milan og við erum bara Stjarnan."
,,Við erum að spila á móti Inter Milan og við erum bara Stjarnan."
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 3 Inter
Stemningin var frábær á vellinum í dag og Veigar segir það hafa verið gaman að spila með uppeldisfélaginu fyrir framan fullan Laugardalsvöll.
,,Það var magnað að spila í dag og ég þakka þvílíkt fyrir stuðninginn. Maður var lengi með gæsahúð í leiknum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir