Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 20. ágúst 2017 17:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Möguleikar Stál-úlfs úr sögunni
Stál-úlfur á ekki lengur möguleika.
Stál-úlfur á ekki lengur möguleika.
Mynd: Aðsend
Öllum leikjum dagsins í 4. deild karla er lokið.

D-riðill
Stál-úlfur á engan möguleika á sæti í úrslitakeppninni eftir jafntefli gegn Drangey í dag. Stál-úlfur komst í 2-0 í leiknum, en þeir misstu forystuna sína niður í jafntefli. Möguleikarnir voru mjög litlir fyrir Stál-úlf fyrir leikinn, en nú eru þeir engir. Allt bendir til þess að það verði Álftanes og KH sem fari í úrslitakeppnina úr D-riðlinum.

Drangey 2 - 2 Stál-úlfur
0-1 Aron Freyr Kristjánsson ('9)
0-2 Goran Lukic ('18)
1-2 Guðni Þór Einarsson ('47)
2-2 Jón Grétar Guðmundsson ('68)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner