sun 20. ágúst 2017 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte: Ég vil þakka leikmönnum mínum
Mynd: Getty Images
„Fyrst af öllu, þá vil ég þakka leikmönnum mínum. Þeir lögðu allt sitt í þennan leik," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea, eftir 2-1 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Ég er mjög sáttur með viljann sem leikmenn sýndu í því að berjast um alla bolta og þeir sýndu mér að þráin frá síðasta tímabili er enn til staðar," sagði Conte.

„Stuðningsmenn okkar voru frábærir í dag og þessi dagur var heilt yfir mjög góður hjá okkur."

Chelsea tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu, en Conte var gríðarlega sáttur með viðbrögðin sem hann fékk frá sínum leikmönnum í dag.

„Við sem ríkjandi meistarar svöruðum fullkomlega. Við unnum deildina á síðasta tímabili og það er ekki auðvelt. Við höfum lent í skakkaföllum fyrir þetta tímabil, en við verðum að vera tilbúnir að leggja okkur fram á vellinum. Félagið er að gera sitt besta á leikmannamarkaðnum til að styrkja hópinn, en ég verð að vera ánægður," sagði Conte að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner