sun 20. ágúst 2017 15:00
Stefnir Stefánsson
England: Huddersfield með fullt hús
Mynd: Getty Images
Huddersfield 1-0 Newcastle
1-0 Aaron Mooy ('50)

Huddersfield tók á móti Newcastle United í nýliðaslag í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu.

Huddersfield sótti góðan útisigur gegn Palace í fyrstu umferðinni á meðan að Newcastle lág fyrir Totteham á heimavelli.

Eina mark leiksins kom eftir laglegt spil, þar sem að Aaron Mooy rak endahnútinn á sóknina með góðu skoti.

1-0 sigur Huddersfield staðreynd og byrja nýliðarnir virkilega vel en þeir eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. En Newcastle þurfa enn að bíða eftir fyrsta stigri þeirra í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner