Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 20. ágúst 2017 21:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Neymar allt í öllu í þægilegum sigri PSG
Neymar hefur byrjað vel með PSG.
Neymar hefur byrjað vel með PSG.
Mynd: Getty Images
PSG 6 - 2 Toulouse
0-1 Max Gradel ('18)
1-1 Neymar ('31)
2-1 Adrien Rabiot ('35)
3-1 Edinson Cavani ('75, víti)
3-2 Thiago Silva ('78, sjálfsmark)
4-2 Javier Pastore ('82)
5-2 Layvin Kursawa ('84)
6-2 Neymar ('90)

Neymar, dýrasti fótboltamaður sögunnar, hefur farið vel af stað í París. Hann lék í kvöld sinn annan leik fyrir Paris Saint-Germain, sinn fyrsta heimaleik. PSG mætti Toulouse.

Neymar var með mark og stoðsendingu í fyrsta leik og í kvöld gerði hann gott betur. Hann skoraði tvö og lagði upp tvö í 6-2 sigri PSG.

Hann jafnaði fyrir PSG og lagði síðan upp annað markið. Hann lagði upp fimmta markið og skoraði sjötta markið.

PSG er á toppi frönsku deildarinnar.



Athugasemdir
banner
banner
banner