Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 20. ágúst 2017 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Kolarov með sigurmark í fyrsta leik sínum með Roma
Kolarov fljótur að opna markareikninginn.
Kolarov fljótur að opna markareikninginn.
Mynd: Getty Images
Atalanta 0 - 1 Roma
0-1 Aleksandar Kolarov ('31 )

Fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni, Seríu A er lokið. Hann kláraðist með sigri Roma á Atalanta í hörkuleik.

Það var aðeins eitt mark skorað í leiknum, en það gerði bakvörðurinn Aleksandar Kolarov með skoti beint úr aukaspyrnu. Kolarov var að spila sinn fyrsta leik fyrir Roma eftir að hafa komið frá Manchester City í sumar. Ekki slæm frumraun hjá honum, alls ekki.

Þetta nægði Roma til sigurs í erfiðum fyrsta leik á tímabilinu.

Kl. 18:45 hefjast sjö leikir í deildinni. Inter Milan og AC Milan eru bæði að fara að spila sinn fyrsta leik. Fróðlegt verður að fylgjast með því.
Athugasemdir
banner
banner