Leikur Víkings R og KA sem fram fara átti kl. 18:00 í dag hefur verið frestað um 15. mínútur.
Ástæða fyrir frestuninni er sú að rútan sem er að ferja leikmenn KA til Reykjavíkur bilaði á leiðinni.
Stigu þeir upp í aðra rútu í Borganesi kl. 16:30 c.a. og seinkaði því för þeirra í bæinn.
Vonandi að þetta setji ekki of mikil strik í reikninginn fyrir bæði lið.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Athugasemdir