banner
   sun 20. ágúst 2017 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Wenger: Við vorum óheppnir með ákvarðanir dómarans
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var skiljanlega ekki sáttur eftir tap sinna manna gegn Stoke í gær.

Stoke hafði betur 1-0 kannski gegn gangi leiksins þar sem Arsenal menn stjórnuð leiknum á köflum.

„Ég held að þetta sé eitt af þessum kvöldum sem maður er reiður, ástæðan fyrir því er ekki bara sú að við skoruðum ekki heldur einnig vegna þess að við fengum fjölda færa til þess að skora."

„Við gerðum klaufaleg mistök fyrir markið, fyrst misstum við boltann og svo vörðumst við ekki nóg og vel."

„Og að auki held ég að við höfum verið óheppnir með nokkrar ákvarðanir dómarans vegna þess að við skoruðum löglegt mark," sagði Wenger að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner