SportTv.is og Fótbolti.net sýna valda leiki í 1. deild karla í beinni vefsjónvarpsútsendingu. Það er leikur Leiknis og Tindastóls í lokaumferðinni sem sýndur verður beint að þessu sinni en hann hefst klukkan 14 á Leiknisvelli.
Leikni nægir jafntefli til að tryggja sér sigur í deildinni og þá fer bikarinn á loft eftir leikinn. Lýsandi er Freyr Brynjarsson.
Athugasemdir