Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. september 2014 13:12
Jón Stefán Jónsson
Byrjunarlið Aston Villa og Arsenal: Özil heldur sæti sínu
Tom Cleverley byrjar hjá Aston Villa
Tom Cleverley byrjar hjá Aston Villa
Mynd: Getty Images
Búið er að tilkynna byrjunarlið Aston Villa og Arsenal sem eigast við kl.14.00 í dag í ensku úrvalsdeildinni.

Fátt kemur á óvart í byrjunarliðum liðanna í dag en gestirnir úr Arsenal hvíla enga leikmenn, þrátt fyrir að hafa verið að spila á þriðjudaginn síðasta í Meistaradeildinni.
Arsenal þarf nauðsynlega á sigri að halda en liðið hefur unnið einn leik og gert þrjú jafntefli í fyrstu fjórum umferðum deildarinnar.

Aston Villa hefur hins vegar farið frábærlega af stað og eru í öðru sæti deildarinnar með 10 stig að loknum fjórum leikjum, nokkuð sem fáir áttu von á fyrir tímabilið.

Aston Villa: Guzan, Senderos, Hutton, Clark, Cissokho, Delph, Westwood, Cleverley, Richardson, Weimann, Agbonlahor.

Arsenal: Szczesny, Chambers, Mertesacker, Koscielny, Gibbs, Arteta, Ramsey, Cazorla, Ozil, Alexis, Welbeck.
Athugasemdir
banner
banner
banner