Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. september 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Gylfi og félagar fá Southampton í heimsókn
Mynd: Getty Images
Það er nóg um að vera í Evrópuboltanum í dag og þá ber hæst að nefna ensku úrvalsdeildina að sjálfsögðu.

Þetta byrjar á fjöri en Harry Redknapp og félagar í QPR fá Stoke City í heimsókn í hádeginu áður en Arsenal heimsækir Aston Villa á Villa Park.

Villa sigraði Liverpool í síðasta leik með einu marki gegn engu á meðan Arsenal gerði 2-2 jafntefli við Manchester City.

Gylfi Þór Sigurðsson og vinir í Swansea fá Southampton í heimsókn og þá mætir Burnley liði Sunderland.

Newcastle og Hull mætast svo einnig klukkan 14:00 áður en West Ham United fær Liverpool í heimsókn klukkan 16:30.

Leikir dagsins:
11:45 QPR - Stoke City (Stöð 2 Sport 2)
14:00 Aston Villa - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
14:00 Swansea - Southampton (Stöð 2 Sport 4)
14:00 Burnley - Sunderland (Stöð 2 Sport 5)
14:00 Newcastle - Hull City (Stöð 2 Sport 6)
16:30 West Ham - Liverpool (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner