Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. september 2014 09:43
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Fréttablaðið 
Félag í Kína hefur áhuga á Viðari Erni
Viðar fagnar einu af fjölmörgum mörkum sínum.
Viðar fagnar einu af fjölmörgum mörkum sínum.
Mynd: Kenneth Myhre - Kennethmyhre.net
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson hefur slegið í gegn í Noregi og raðað inn mörkum fyrir Valerenga. Markaskorun hans hefur vakið áhuga ýmissa liða í Evrópu en einnig hjá liðum utan álfunnar.

Í Fréttablaðinu í morgun er sagt að félag í Kína hafi gert tilboð í Viðar og samkvæmt heimildum blaðsins myndi hann fá allavega helmingi betri samning þar en hjá félagi í Evrópu.

„Ég vissi af þeim áhuga en ég veit ekki hvar það stendur. Það yrði skrítið að fara þangað en örugglega spennandi,“ segir Viðar

„Ef maður tekur rangt skref þá getur það eyðilagt ýmislegt. Ég er samt ekki það gamall að ég ætti kannski möguleika á að koma aftur inn einhvers staðar. Ég myndi samt skoða Kína eins og hvað annað. Maður veit aldrei.“
Athugasemdir
banner
banner