Leiknismenn innsigluðu sigur sinn í 1. deildinni í dag með 4-0 sigri gegn Tindastóli. Pepsi-deildin bíður Leikni næsta tímabil.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 4 - 0 Tindastóll
,,Tilfinningin er frábær, við þurftum að klára þetta verkefni eins og fagmenn og við gerðum það. Við erum búnir að skila þessum titli í hús og núna getur fólk fagnað," sagði Hilmar Árni Halldórsson leikmaður liðsins eftir 4-0 sigur á Tindastóli í dag en með sigrinum tryggði liðið sér sigur í deildinni eftir að hafa tryggt sér sæti í Pepsi-deild á dögunum.
,,Það var aðeins meira fagnað þá en þetta er frábær tilfinning og mér finnst við eiga það verðskuldað."
,,Þegar þú ert í þessu þá viltu alltaf vinna allt og við erum með það gott lið og héldum að við gætum unnið og gerðum það. Strákarnir eru búnir að vera frábærir og allir hérna. Þetta er búið að vera frábært tímabil."
Leiknir spilar í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn næsta sumar en er liðið tilbúið í það?
,,Það held ég," sagði Hilmar Árni. ,,Við erum með flott lið og einstaklinga. Ef við gerum þetta eins og liðsheild þá held ég að við getum gert flotta hluti. Við erum fjölskylduklúbbur og förum langt á baráttu og hjartanu. En ég hef trú á gæðunum líka í þessu liði."
Athugasemdir