lau 20. september 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Liverpool: The Complete Record - Sértilboð fyrir þig
Mynd: Aðsend
Hið magnaða ritverk þeirra Arngríms Baldurssonar og Guðmundar Magnússonar, "Liverpool: The Complete Record", hefur verið endurútgefið. Fyrsta útgáfa bókarinnar fékk mjög góða dóma og nú hefur sú útgáfa verið endurbætt og lengd og inniheldur nú m.a. alla vináttuleiki liðsins sem eru tæplega 900 talsins. Bókin kom fyrst út árið 2011 en nú nær allur fróðleikurinn til síðustu leiktíðar.

Eigendur LFChistory.net, og höfundar "Liverpool: The Complete Record" og "The Liverpool Encyclopedia", gera nú stuðningsmönnum Liverpool á Íslandi tilboð sem hér er að neðan.

15% afsláttur fæst af Complete Record, The Liverpool Encyclopedia og Make Us Dream ef þið sláið inn kóðann LFCHistory þegar þið fullklárið pöntunina.

Fyrst farið þið inn á shop.decoubertin.co.uk og sláið inn nafnið ykkar eða nafn þess sem þið viljið að birtist á heiðurslistanum aftast í bókinni (einungis í tilviki "Liverpool: The Complete Record").

Síðan tekur eftirfarandi ferli við: a) Proceed to checkout, b) Bill and shipping details, c) Shipping method, d) Order confirmation.

Þá er komið að því að slá inn kóðann í þar til gerðan dálk undir : Redeem a Gift Certificate or Coupon.
Athugasemdir
banner
banner
banner