QPR 2 - 2 Stoke
0-1 Diouf ('11)
1-1 Caulker ('42)
1-2 Crouch ('51)
2-2 Kranjcar ('88)
0-1 Diouf ('11)
1-1 Caulker ('42)
1-2 Crouch ('51)
2-2 Kranjcar ('88)
Queens Park Rangers náði í dag jafntefli við Stoke á heimavelli sínum Loftus Road. Niko Kranjcar jafnaði leikinn fyrir heimamenn rétt fyrir leikslok.
Stoke náði tvívegis yfirhöndinni í leiknum en QPR jafnaði jafn harðan. Úrslitin báðum liðum eflaust vonbrigði, þó sér í lagi QPR sem hefur farið frekar illa af stað á tímabilinu. Liðið hefur nú fengið á sig 11 mörk í fyrstu fimm leikjunum og einungis skorað þrjú.
Markatala Stoke er mun skárri, fjögur mörk skoruð og fimm fengin á sig en þeir eru hins vegar með aðeins einu stigi meir en QPR sem er með fjögur stig. Bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar.
Athugasemdir