Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. september 2014 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Simeone: Strákarnir eru með gott sjálfstraust
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid á Spáni, vonast til þess að sigur þeirra á Real Madrid síðustu helgi hjálpi þeim gegn Celta Vigo í dag.

Spænska meistaraliðið sigraði Real Madrid síðustu helgi með tveimur mörkum gegn einu en tapaði svo fyrir Olympiakos í Meistaradeild Evrópu í vikunni en Simeone vonast til þess að menn mæti vel stemmdir í dag.

,,Ég held að strákarnir séu með meira sjálfstraust eftir leikinn gegn Real Madrid. Við munum spila fyrir framan okkar stuðningsmenn og gegn erfiðu liði en vonandi tekst okkur að spila vel," sagði Simeone.

,,Það er spilað mikið af leikjum í byrjun tímabils og það er afar strembið," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner