Everton hefur sektað Wayne Rooney um tveggja vikna laun eftir að hann játaði á sig ölvunarakstur.
Sóknarmaðurinn missti ökuréttindin í tvö ár og hefur Everton sektað leikmanninn en peningurinn verður settur í gott málefni.
Sóknarmaðurinn missti ökuréttindin í tvö ár og hefur Everton sektað leikmanninn en peningurinn verður settur í gott málefni.
„Eftir réttarhöldin í dag vil ég opinberlega biðjast afsökunar á ófyrirgefanlegu dómgreindarleysi mínu með því að keyra þegar ég var yfir leyfilegum mörkum. Það var algjörlega rangt," sagði Rooney í yfirlýsingu eftir að hann missti bílprófið.
Rooney gekk í raðir Everton í sumar. Hann fór vel af stað á tímabilinu en hefur ekki gengið eins vel í síðustu leikjum.
Everton hefur verið í basli en liðið mætir Sunderland í deildabikarnum í kvöld.
Athugasemdir