Ilkay Gundogan, miðjumaður Manchester City, er líklega einn óheppnasti fótboltamaður sögunnar.
Gundogan spilaði sinn fyrsta leik eftir að hafa verið frá í níu mánuði á laugardaginn þegar City vann 6-0 sigur á Watford. Gundogan var síðan í byrjunarliði Man City í kvöld og var virkilega öflugur fram á 59. mínútu, en þá þurfti hann að fara meiddur af velli.

Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Gundogan frá því í september.
Hann virtist sárþjáður eftir viðskipti við Claudio Yacob, miðjumann West Brom, í 2-1 sigri City í deildabikarnum í kvöld. Svo virtist sem Gundogan hafi orðið fyrir ökklameiðslum.
Gundogan var fyrsti leikmaðrinn sem Pep Guardiola keypti til Manchester City á síðasta ári, en þýski landsliðsmaðurinn hefur aðeins spilað 18 leiki í öllum fyrir félagið vegna meiðsla.
That did not look good for Gundogan. Looks like he's hurt his left ankle after Yacob challenge from behind
— James Robson (@JamesRobsonMEN) September 20, 2017
Athugasemdir