Alex Oxlade-Chamberlain hefur fengið mikla gagnrýni á sig eftir dapra byrjun með Liverpool.
Oxlade-Chamberlain kom til Liverpool frá Arsenal á 40 milljónir punda á lokadegi félagaskiptagluggans.
Hann lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik með Liverpool í gær gegn Leicester og var vægast sagt slappur.

Einn þeirra sem hafa gagnrýnt Uxann er Emile Heskey, fyrrum sóknarmaður Liverpool.
„Vonbrigði. Stundum gleymdirðu því að hann var að spila í leiknum," sagði Heskey á Sky Sports í gær.
„Þú býst við því af honum að hann sé á fullri ferð á kantinum, en við sáum það ekki í þessum leik. Það verður samt einnig að hrósa Ben Chilwell þar sem hann var frábær í leiknum."
Sjá einnig:
Oxlade-Chamberlain gagnrýndur fyrir dapra byrjun hjá Liverpool
Athugasemdir