Atletico Madrid er í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Athletic Bilabo í Baskalandi í kvöld.
Angel Correa spilaði frammi með Antoine Griezmann, en hann skoraði fyrsta markið í leiknum. Áður en Correa skoraði hafði Aritz Aduriz, sóknarmaður Bilbao, klúðrað vítaspyrnu.
Atletico refsar og þeir skoruðu sitt annað mark á 73. mínútu. Yannick Ferreira-Carrasco skoraði það eftir undirbúning Griezmann.
Bilbao minnkaði muninn undir lok leiksins, en það var ekki nóg. Lokatölur 2-1 fyrir Atletico Madrid á Sam Mames í kvöld.
Það var ekki eins mikið fjör í hinum leiknum sem kláraðist á sama tíma. Leganes og Girona gerðu þar markalaust jafntefli.
Athletic 1 - 2 Atletico Madrid
0-0 Aritz Aduriz ('41 , Misnotað víti)
0-1 Angel Correa ('55 )
0-2 Yannick Ferreira-Carrasco ('73 )
1-2 Raul Garcia ('90 )
Leganes 0 - 0 Girona
Athugasemdir