Líklega ein óvæntustu úrslit tímabilsins áttu sér stað á Spáni í kvöld.
Real Madrid hefur aðeins hikstað í upphafi tímabils, en í kvöld endurheimtu þeir Cristiano Ronaldo úr banni. Því héldu nú flestir að þeir myndu vinna auðveldan sigur á Real Betis á heimavelli.
Annað kom hins vegar á daginn því Real Betis vann leikinn! Sigurmarkið gerði Antonio Sanabria í uppbótartíma.

Þetta tap mun væntanlega reynast Real Madrid mjög dýrkeypt. Þeir eru núna sjö stigum á eftir Barcelona eftir fimm leiki.
Í öðrum leikjum vann Sevilla 1-0 sigur á Las Palmas þar sem Jesus Navas gerði sigurmarkið og Deportivo lagði Alaves.
Hér að neðan eru úrslit og markaskorarar kvöldsins.
Sevilla 1 - 0 Las Palmas
1-0 Jesus Navas ('83 )
Deportivo 1 - 0 Alaves
1-0 Luisinho ('45 )
Real Madrid 0 - 1 Betis
0-1 Antonio Sanabria ('90 )
🏁 FT: #RealMadrid 0-1 @RealBetis (Sanabria 90'+4')#RMLiga pic.twitter.com/JhPzil7D8K
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) September 20, 2017
Real Madrid: Have failed to score in a competitive match for the first time since April 2016, ending their record 74-match scoring streak pic.twitter.com/kqiZxc6po3
— WhoScored.com (@WhoScored) September 20, 2017
Athugasemdir