Lausanne 1 - 1 Zürich
0-1 R. Rodriguez ('13)
1-1 F. Margiotta ('45)
0-1 R. Rodriguez ('13)
1-1 F. Margiotta ('45)
Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allar 90 mínúturnar þegar Zürich gerði jafntefli gegn Lausanne í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld.
Guðlaugur Victor er á sínu fyrsta tímabili í Sviss en hann kom til Zürich frá Esbjerg í sumar.
Hann hefur verið að spila mikið, en í kvöld spilaði hann allan leikinn í 1-1 jafntefli. Zürich komst yfir á 13. mínútu, en Lausanne náði að jafna metin áður en fyrri hálfleikurinn kláraðist.
Zürich er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Young Boys. Þeir eru í baráttu um toppsætið.
Athugasemdir