Sérstakar treyjur í tilefni leiksins
Núna klukkan 18:45 mætast Everton og Sunderland í enska deildabikarnum.
Leikurinn í kvöld hefur sérstaka merkingu þar sem þetta eru tvö af uppáhaldsliðum Bradley Lowery, en hann var ungur drengur sem vann hug og hjörtu knattspyrnuunnenda á síðasta ári.
Leikurinn í kvöld hefur sérstaka merkingu þar sem þetta eru tvö af uppáhaldsliðum Bradley Lowery, en hann var ungur drengur sem vann hug og hjörtu knattspyrnuunnenda á síðasta ári.
Hann lést í sumar, en þetta er í fyrsta sinn frá því hann lést þar sem þessi lið mætast.
Því var ákveðið að búa til sérstakar treyjur fyrir leikinn í kvöld. Liðin munu leika með sérstaka auglýsingu á treyjum sínum þar sem styrktarstjóður Bradley litla er auglýstur.
Leikurinn hefst eins og áður segir 18:45, en Gylfi Sigurðsson er á meðal varamanna hjá Everton. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin
looking forward to Brad's favourite teams playing tonight. Thank's to @SunderlandAFC @Everton for your support #onlyonebradleylowery
— Bradley Lowery (@Bradleysfight) September 20, 2017
Athugasemdir