Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 20. september 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar 2019 á heimavelli Atletico
Wanda Metropolitano leikvangurinn.
Wanda Metropolitano leikvangurinn.
Mynd: Getty Images
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á næsta tímabili, 2018/2019, fer fram á Wanda Metropolitano leikvanginum í Madrid.

Wanda Metropolitano er nýr heimavöllur Atletico Madrid.

Atletico spilaði sinn fyrsta leik á vellinum á dögunum en þar er pláss fyrir 67 þúsund áhorfendur.

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar næsta vor verður í Kiev í Úkraínu.

Síðastliðið vor sigraði Real Madrid lið Juventus 4-1 í úrslitaleiknum í Cardiff í Wales.

Sjá einnig:
Svona verður Wanda Metropolitano
Athugasemdir
banner