Rafa Benítez, þjálfari Napoli, telur að liðið geti barist um ítalska meistaratitilinn á þessari leiktíð þrátt fyrir að vera nú þegar átta stigum frá toppnum.
Napoli gat nálgast topplið Juventus eftir að meistararnir gerðu 1-1 jafntefli við Sassuolo á laugardag, en lærisveinar Benítez þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli gegn Inter eftir að hafa lent tvisvar undir.

,,Við sýndum það í fyrra að við getum barist á toppnum," sagði Spánverjinn við Sky Sport Italia, en Napoli endaði í þriðja sæti á leiktíðinni.
,,Ég er ekki svekktur með jafnteflið, ég er ánægður með baráttu leikmannanna á þessum erfiða leikvangi. Það var samt svekkjandi að komast yfir tvisvar og láta þá jafna strax."
Athugasemdir