Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 20. október 2014 21:15
Daníel Freyr Jónsson
Berahino: Veit að mörkin munu halda áfram að koma
Mynd: Getty Images
Hinn 21 árs gamli Saido Berahino skoraði sitt sjötta mark í 8 leikjum í 2-2 jafntefli WBA gegn Manchester United í kvöld

United jafnaði undir lok leiks eftir að WBA hafði í tvígang tekið forystuna. Berahino skoraði síðara mark liðsins og segir hann það hafa verið gríðarlega svekkjandi að missa sigurinn niður.

,,Mér fannst við gera mjög vel með að ná öðru markinu og við vorum rosalega svekktir með jöfnunarmarkið," sagði Berahino.

,,Ég vissi að ef við myndum halda einbeitingu þá myndi ég fá tækifæri til að skora í kvöld. Ég er bara að leyfa fótboltanum að ganga sinn gang og ég veit að mörkin munu halda áfram að koma."
Athugasemdir
banner
banner
banner