Jónas Guðni Sævarsson segist ekki reikna með öðru en að leika áfram með KR á næsta tímabili.
Jónas Guðni hefur verið orðaður við uppeldisfélag sitt Keflavík en hann á ennþá ár eftir af samningi sínum við KR og reiknar ekki með að fara neitt.
Jónas Guðni hefur verið orðaður við uppeldisfélag sitt Keflavík en hann á ennþá ár eftir af samningi sínum við KR og reiknar ekki með að fara neitt.
,,Ég hef ekkert heyrt í Keflvíkingunum eða heyrt frá KR-ingunum að þeir hafi verið að biðja um slíkt," sagði Jónas Guðni við Fótbolta.net í dag.
Jónas Guðni kom til KR um mitt sumar í fyrra eftir að hafa leikið með Halmstad í Svíþjóð.
,,Ég valdi KR þegar ég kom heim frá Svíþjóð því að mér líður vel þar og ég tel mig vera KR-ing," sagði Jónas.
Í sumar spilaði hinn þrítugi Jónas tólf leiki í Pepsi-deildinni en hnémeiðsli settu strik í reikninginn hjá honum.
Athugasemdir