Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. október 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Mertesacker telur að Arsenal geti barist um titilinn
Per Mertesacker gegn Hull.
Per Mertesacker gegn Hull.
Mynd: Getty Images
Per Mertesacker, varnarmaður Arsenal, er sannfærður um að liðið geti blandað sér aftur í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Arsenal rétt náði 2-2 jafntefli gegn Hull á laugardag og er liðið í 6. sæti deildarinnar, 11 stigum frá toppliði Chelsea.

,,Við verðum að taka ábyrgð á því að hafa aftur tapað stigum, en það sem veitir mér mikla trú er að við erum að spila mjög vel," sagði Mertesacker.

,,Sama hvað gerist, þá höldum við áfram og það býr mikið í okkur. Við verðum bara að nýta okkur það betur."

Athugasemdir
banner
banner
banner