Real Sociedad 1 - 2 Getafe
1-0 Pablo Hervias ('82 )
1-1 Abdoul Karim Yoda ('90 )
1-2 Abdoul Karim Yoda ('90 )
1-0 Pablo Hervias ('82 )
1-1 Abdoul Karim Yoda ('90 )
1-2 Abdoul Karim Yoda ('90 )
Alfreð Finnbogason lék í klukkutíma með Real Sociedad í 2-1 tapi Getafe á heimavelli í kvöld.
Öll mörkin komu á síðustu 20 mínútum leiksins, en Sociedad komst yfir með marki varamannsins Pablo Hervias. Abdoul Yoda skoraði hinsvegar í tvígang fyrir Getafe undir lokin og tryggði gestunum stigin þrjú.
Alfreð var í byrjunarliði heimamanna í fyrsta sinn í kvöld. Hann lék í fremstu víglínu liðsins en fór af velli fyrir Sergio Canales á 61. mínútu.
Real Sociedad hefur einungis unnið einn af fyrstu átta leikjum sínum til þessa og hefur fimm stig. Getafe hefur 10 stig um miðja deild.
Athugasemdir