Töluvert var hlegið að Southampton í sumar þegar liðið missti nánast alla bestu leikmenn sína til annarra félaga.
Southampton stóð sig vel í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en þurfti að horfa á eftir fjölmörgum stórstjörnum liðsins.
Liverpool tók til að mynda þrjá þeirra, þá Adam Lallana, Rickie Lambert og Dejan Lovren. Í stað þeirra tveggja fyrrnefndu komu Graziano Pelle og Dusan Tadic til Southampton, og þeir hafa heldur betur slegið í gegn.

Margir vissu afar lítið um þá Pelle og Tadic, en á meðan Lallana og Lambert hafa átt erfitt uppdráttar hafa hinir tveir verið hreint út sagt magnaðir og hjálpað Southampton að vera í þriðja sæti deildarinnar.
Þessi magnaða mynd frá Sky Sports hér að neðan sýnir þann gríðarlega mun á þessum tveimur pörum leikmanna á tímabilinu.
Athugasemdir