Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. október 2016 18:47
Jóhann Ingi Hafþórsson
Albert Brynjar og Oddur áfram í Fylki (Staðfest)
Albert eftir undirskrift.
Albert eftir undirskrift.
Mynd: Fylkir
Oddur Ingi.
Oddur Ingi.
Mynd: Fylkir
Knattspyrnudeild Fylkis skrifaði í dag undir nýja samninga við Albert Brynjar Ingason og Odd Inga Guðmundsson.

Albert er uppalinn í Árbænum og hefur hann spilað 160 leiki í deildar og bikarkeppni fyrir Fylki og skorað í þeim 56 mörk . Hann er þrítugur sóknarmaður sem spilaði sjö yngri landsleiki á sínum tíma. Albert semur við Fylki til þriggja ára.

Oddur er eins og Albert, uppalinn Árbæingur. Hann hefur spilað 76 leiki í deild og bikarkeppni fyrir Fylki og skorað í þeim átta mörk. Oddur, sem er fæddur 1989 semur við Fylki til tveggja ára en hann lék á sínum tíma sjö yngri landsleiki og skoraði í þeim eitt mark.

„Ég sem við félagið til þriggja ára því Fylkir er mitt félag og mér líst vel á það hvernig félagið og allir í kringum klúbbinn eru samstiga í því að koma Fylki aftur upp meðal þeirra bestu þar sem okkar flotti klúbbur á að vera. Einnig er ég hungraður að leggja meira á mig persónulega og hjálpa mínum klúbb að komast aftur á réttan stað, hefði ekki getað farið frá klúbbnum á þessum nótum. Ég elska klúbbinn og fólkið í kringum hann og hlakka til að hjálpast að við það að gera 50 ára afmæli félagsins eftirminnilegt," segir Albert Brynjar.

„Það kom ekkert annað til greina en að vera áfram hjá Fylki. Þetta er frábært félag og hérna líður mér vel. Nú þurfa bara allir að standa saman, allir sem koma að félaginu. Ég hlakka til að takast á við framhaldið með nýjum þjálfurum og vonandi verður afmælisárið okkur Fylkisfólki gott. Það verður gaman að labba út á völl næsta sumar og spila fyrir framan okkar frábæru stuðningsmenn. Þar má nefna menn eins og Björn Metúsalem, Daníel Freyr Guðmundsson og Sigurð Þór Reynisson," segir Oddur Ingi leikmaður Fylkis.
Athugasemdir
banner