Atletico Madrid má ekki kaupa leikmenn í janúar þar sem FIFA hefur sett þá í bann fyrir að fara ekki eftir settum reglum þegar kemur að því að kaupa erlenda unga leikmenn.
Spænska félagið áfrýjaði niðustöðu FIFA en málið mun taka nokkra mánuði í dómsölum og því fær Atletico ekki að kaupa leikmenn í janúar þar sem málið verður ennþá í fullum gangi.
Atletico hefur lýst yfir sakleysi sínu en niðurstaða í málinu kemur líklegast ekki fyrr en næsta sumar.
Refsingin var upprunalega gefin í byrjun þessa árs en Manchester City og Real Madrid fengu sömu refsingu á sínum tíma.
Athugasemdir