Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. október 2016 16:41
Magnús Már Einarsson
Harry Redknapp keyrði yfir konuna sína
Harry Redknapp.
Harry Redknapp.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp lenti í mjög leiðinlegu atviki í vikunni en hann keyrði þá óvart yfir Söndru, eiginkonu sína.

Hinn 69 ára gamli Harry var á Range Rover bifreið sinni þegar hann skutlaði Söndru í verslunarferð.

Frakki sem Sandra var í festist við bílinn þegar hún var á leiðinni út úr honum. Harry áttaði sig ekki á því og keyrði af stað. Harry keyrði yfir ökklann á Söndru en hún féll til jarðar og meiddist nokkuð illa.

Sandra var flutt með flýti á sjúkrahús þar sem meiðsli hennar voru skoðuð. Hún fékk síðan að fara heim eftir sólarhrings dvöl á sjúkrahúsinu.

Harry var sjálfur í miklu áfalli eftir atvikið en samkvæmt fréttum frá Englandi var Sandra heppin að meiðast ekki meira.
Athugasemdir
banner
banner
banner