Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 20. október 2016 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Martial og Schneiderlin að snúa til baka eftir meiðsli
Martial meiddist um daginn
Martial meiddist um daginn
Mynd: Getty Images
Morgan Schneiderlin og Anthony Martial, leikmenn Manchester United, eru að ná sér af meiðslum sem hafa hrjáð þá undanfarið og gætu þeir spilað gegn Fenerbahce í kvöld.

Þeir misstu báðir af markalausa jafnteflinu við Liverpool á mánudag en þeir urðu fyrir hnjaski um síðustu helgi.

United mætir Fenerbahce á Old Trafford í kvöld en það er 3. umferð riðlakeppninnar í Evrópu deildinni. Búast má við breytinum á United liðinu þar sem það mætti Liverpool á mánudag og svo er leikur gegn Chelsea á sunnudag.

Phil Jones er eini maðurinn sem æfði ekki í gær en hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli.

United byrjaði keppnina á 1-0 tapi gegn Feyenoord áður en þeir unnu Zorya á heimavelli.
Athugasemdir
banner