Lionel Messi skoraði þrennu í 4-0 sigri Barcelona á Manchester City í gærkvöldi í Meistaradeildinni.
Eftir þrennuna er Messi búinn að skora flest mörk allra á heimavelli í þessari stærstu keppni álfunnar.
Eftir þrennuna er Messi búinn að skora flest mörk allra á heimavelli í þessari stærstu keppni álfunnar.
Raul, fyrrum framherji Real Madrid, átti metið en hann skoraði 49 mörk á heimavelli í Meistaradeildinni en Messi er nú kominn með 50.
Hann hefur nú skorað 16 mörk gegn enskum félögum en Real Madrid er eina félagið í Meistaradeildinni sem hefur skorað fleiri þrennur en Messi sem er kominn með sjö en Real er alls með níu.
Athugasemdir