Goal.com hefur birt úrvalslið þeirra leikmanna sem áttu vonda Meistaradeildarviku. Þrír frá Manchester City eru í liðinu eftir 4-0 tapið gegn Manchester City.
Auk Nicolas Otamendi og Fernandinho er það að sjálfsögðu markvörðurinn Claudio Bravo sem er í liðinu. Bravo gerði hrikaleg mistök og fékk svo rauða spjaldið í leiknum.
Hann hefur hlotið mikla gagnrýni eftir leikinn.
Kolo Toure er að sjálfsögðu í vörn Ekki liðsins en hann átti sök á báðum mörkunum sem Celtic frá Glasgow fékk á sig.
Meðal annarra leikmanna í liðinu er Lorenzo Insigne hjá Napoli sem klúðraði vítaspyrnu í 2-3 tapi gegn Besiktas í gær.
Sjá einnig:
Kolo Toure niðurbrotinn: Tapið mér að kenna
Athugasemdir