Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. október 2017 12:30
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Byrjunarlið Íslands gegn Þýskalandi: Rakel inn
Rakel er í byrjunarliði Íslands í dag
Rakel er í byrjunarliði Íslands í dag
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari hefur opinberað byrjunarlið Íslands sem tekst á við Þjóðverja í undankeppni HM. Freyr gerir eina breytingu á byrjunarliði Íslands frá 8-0 sigrinum á Færeyjum.

Rakel Hönnudóttir kemur inn í liðið fyrir Öglu Maríu Albertsdóttur. Þá fer íslenska liðið aftur í 3-5-2 leikkerfið sem það notaðist við á Evrópumótinu eftir að hafa spilað 4-3-3 gegn Færeyjum í fyrsta leik undankeppninnar.

Byrjunarliðið má sjá hér að neðan.

Leikurinn hefst kl.14:00 að íslenskum tíma og verður í beinni á RÚV. Eins verður leikurinn auðvitað í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.


Athugasemdir
banner
banner
banner