Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrrum varnarmaður Keflavíkur, hefur tekið við þjálfun Reynis Sandgerði og skrifaði undir tveggja ára samning.
Haraldur hefur lokið KSÍ B þjálfaragráðu en hann lagði skóna á hilluna eftir sumarið í fyrra.
Haraldur lék með Apollon Limassol í Kýpur og Álasundi og Start í Noregi á atvinnumannaferli sínum.
Þá lék hann tvo landsleiki.
Reynir Sandgerði féll úr 3. deildinni á síðasta tímabili og mun því leika í 4. deild, neðstu deild, næsta sumar.
Athugasemdir