Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. október 2017 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Albert með tvö mörk í sigri
Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk í kvöld
Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jong PSV 3 - 2 RKC Waalwijk
1-0 Marcel Ritzmaier ('4 )
2-0 Albert Guðmundsson ('11, víti )
2-1 Roland Bergkamp ('17 )
2-2 Johan Voskamp ('46, víti )
3-2 Albert Guðmundsson ('59 )

Albert Guðmundsson, leikmaður íslenska U21 árs landsliðsins, var í ham er unglinga- og varalið PSV vann RKC Waalwijk 3-2 í hollensku fyrstu deildinni í kvöld.

Albert hefur verið að fá mínútur með aðalliði PSV en auk þess leikur hann með Jong PSV í fyrstu deildinni. Hann gerði tvö mörk fyrir Jong PSV en fyrra kom úr vítaspyrnu og það síðara kom eftir um það bil fimmtán mínútur í síðari hálfleik og tryggði um leið sigur Jong PSV.

Roland Bergkamp skoraði fyrir Waalwijk en hann er frændi fyrrum landsliðsmannsins Dennis Bergkamp sem gerði garðinn frægan hjá Ajax, Arsenal og Inter.

Jong PSV er í fjórtánda sæti með 10 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner