Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 20. október 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM í dag - Stelpurnar heimsækja Þýskaland
Mynd: Anna Þonn
Íslenska kvennalandsliðið heimsækir það þýska í undankeppni HM kvenna í dag.

Þær þýsku eru búnar að leggja Slóveníu og Tékkland að velli á meðan Ísland er aðeins búið að spila við Færeyjar í 8-0 sigri.

Liðin mætast í Wiesbaden klukkan 14:00 og eiga Slóvenar leik við Tékka tveimur tímum síðar.

Landsleikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV, en veðbankar telja litlar sem engar líkur á því að stelpurnar okkar geti gert nokkuð annað en að tapa í Þýskalandi.

Leikir dagsins:
14:00 Þýskaland - Ísland (RÚV)
16:00 Slóvenía - Tékkland
Athugasemdir
banner
banner