Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. nóvember 2014 15:30
Elvar Geir Magnússon
City vill hafa Lampard lengur
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Manchester City mun reyna enn frekar að framlengja lánssamningi við Frank Lampard frá New York City FC eftir að Yaya Toure staðfesti þátttöku sína í Afríkukeppninni í janúar.

Afríkukeppnin hefst 17. janúar og ef Fílabeinsströndin kemst í úrslitaleikinn verður Toure með til 8. febrúar.

Upphaflega var samið við bandaríska félagið um að Lampard myndi snúa aftur til New York í janúar.

Manuel Pellegrini hefur sagt að það sé alls ekki útilokað að halda Lampard lengur og nú ætlar City að reyna það. MLS-deildin fer ekki af stað fyrr en um miðjan mars.
Athugasemdir
banner
banner