Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. nóvember 2014 16:30
Elvar Geir Magnússon
Gefur hverja einustu krónu af launum sínum
Franski miðjumaðurinn Guy Moussi.
Franski miðjumaðurinn Guy Moussi.
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Guy Moussi hefur samið við Birmingham City til tveggja mánaða.

Þessi 29 ára leikmaður mun þó ekkert fá í eigin vasa því hann ætlar að gefa hverja einustu krónu af launum sínum í góðgerðarmál.

Hann mun skipta laununum á fjögur góð málefni, þar á meðal til félags fatlaðra stuðningsmanna Birmingham City og baráttunni gegn ebólu.

Samningur Moussi við Birmingham er til 18. janúar en eftir það verður ákveðið hvort hann muni framlengja dvöl sína.
Athugasemdir
banner
banner