Olivier Giroud er til í slaginn á laugardag þegar Arsenal mætir Manchester United í stórleik í enska boltanum.
Franski landsliðssóknarmaðurinn hefur aðeins spilað tvo leiki á tímabilinu eftir að hafa orðið fyrir fótbroti gegn Everton í ágúst.
Franski landsliðssóknarmaðurinn hefur aðeins spilað tvo leiki á tímabilinu eftir að hafa orðið fyrir fótbroti gegn Everton í ágúst.
Hann hefur verið fljótari að jafna sig en reiknað var með.
Arsenal hefur aðeins unnið 5 af síðustu 14 mótsleikjum en það fer í taugarnar á stuðningsmönnum liðsins sem voru bjartsýnir eftir að peningum hafði verið varið í að styrkja liðið.
Mikel Arteta er einnig leikfær eftir að hafa ekkert spilað það sem af er þessum mánuði vegna meiðsla sem hann hlaut gegn Anderlecht í Meistaradeildinni. Stjórinn Arsene Wenger vill þó ekkert gefa upp um það hvort hann verði notaður alveg strax eða látinn ná sér 100%.
Enn eru nokkrar vikur í Laurent Koscielny og Mathieu Debuchy en Wenger segir að þeir séu á réttri leið í endurhæfingu sinni.
Athugasemdir