Kyle Walker mun snúa aftur á völlinn í næstu viku eftir að hafa verið fjarri góðu gamni í átta mánuði vegna meiðsla.
Þessi enski landsliðsmaður gekkst undir aðgerð á kvið í sumar og hefur ekkert komið við sögu á yfirstandani leiktíð.
Er hinsvegar búist við að hann muni koma við sögu í leik Tottenham gegn Partizan í næstu viku.
Walker hefur ekkert spilað síðan í mars og mun hann núna berjast við Bandaríkjamanninn DeAndre Yedlin um hægri bakvarðastöðu Tottenham.
Athugasemdir