fim 20. nóvember 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Mike Phelan í þjálfaralið Norwich
Mynd: Getty Images
Mike Phelan hefur verið ráðinn í þjálfaralið Norwich í Championship deildinni.

Phelan var aðstoðarstjóri Manchester United frá 2008 til 2013 en hann var þá aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson.

Phelan þekkir til hjá Norwich en hann var leikmaður hjá liðinu frá 1985 til 1989.

Hinn 52 ára gamli Phelan verður aðalþjálfari hjá Norwich en Neil Adams er knattspyrnustjóri liðsins í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner