Viktor Bjarki Arnarsson mætti á æfingu hjá sínu gamla félagi KR í fyrradag.
Viktor Bjarki er á förum frá Fram eftir að hafa leikið með liðinu undanfarin tvö tímabil.
Viktor Bjarki er á förum frá Fram eftir að hafa leikið með liðinu undanfarin tvö tímabil.
,,Hann var að glíma við erfið meiðsli í allt sumar en er að fá botn í það mál núna," sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag.
Viktor lék undir stjórn Bjarna hjá Fram í sumar en hann skoraði eitt mark í tuttugu leikjum í Pepsi-deildinni. Ekki hefur verið rætt um það hvort hann muni ganga í raðir KR.
,,Viktor er frábær fótboltamaður og þetta er eitthvað sem við munum skoða í framhaldinu."
Viktor Bjarki er 31 árs gamall miðjumaður en hann spilaði með KR frá 2008 til 2012.
Athugasemdir