Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. nóvember 2017 23:13
Ívan Guðjón Baldursson
Adebayor ósáttur með fréttaflutning um sig og Rosicky
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlar hafa verið duglegir við að greina frá meintum ummælum Emmanuel Adebayor um Tomas Rosicky, en þeir voru liðsfélagar hjá Arsenal.

Adebayor á að hafa sagt að það nægði að spyrja Rosicky hvernig hann hefði það til að hann myndi meiðast í nokkra mánuði.

Adebayor kennir Goal.com um að dreifa fréttinni, en Goal svaraði ásökunum hans á Twitter eins og hægt er að sjá hér fyrir neðan.

„@goal eruði til í að vinna rannsóknarvinnuna ykkar betur áður en þið birtið dót á vefsíðunni ykkar. Þessi ummæli eru kolröng. Ég ber mikla virðingu fyrir öllum félagsliðum sem ég hef spilað fyrir og fyrrverandi liðsfélögum. Takk," skrifaði Adebayor á Twitter.

„Hæ Emmanuel. Þetta eru nákvæmar þýðingar úr viðtalinu þínu við So Foot tímaritið. Er þetta viðtal skáldað?"








Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner